Bandero, skip hvalverndarsinnans Paul Watson, er komið inn fyrir 200 sjómílna mörk íslensku efnahagslögsögunnar.
„Áhöfn Bandero er nú innan 200 mílna marka Íslands. Landhelgisgæsla Íslands er að eyða peningum í að hafa auga með okkur,“ skrifar Watson í færslu á Facebook.
Watson segir að Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., ætti að senda Gæslunni reikning og sakar Landhelgisgæsluna um að vernda það sem hann kallar glæpsamlega starfsemi.
Skipið Bandero á vegum samtaka Watsons er á leið til landsins í þeim tilgangi að gera allt til að koma í veg fyrir veiðar Hvals hf. að því er Watson segir.