Hin 62 ára Cox er þekktust fyrir að hafa farið með hlutverk Monicu í einum vinsælustu sjónvarpsþáttum sögunnar, Friends, eða Vinum. Hinn 49 ára Johnny McDaid er þekktastur fyrir að hafa verið meðlimur sveitarinnar norðurírsku sveitarinnar Snow Patrol.
Daily Mail greindi fyrst frá sambandsslitunum og TMZ fylgdi svo í kjölfarið. People hefur nú fengið staðfest að sambandinu sé lokið, en hvorki Cox né McDaid hafa tjáð sig um málið.
Cox og McDaid hittust fyrst í veislu heima hjá Cox síðla árs 2013 en níu mánuðum síðar var greint frá því að þau væru trúlofuð. Trúlofuninni var hins vegar slitið árið 2015 en þau byrjuðu svo aftur saman ári síðar.
Parið sást síðast opinberlega saman á US Open tennismótinu í september 2025.