Borgarstjórn samþykkti í apríl tillögu þess efnis að lengja opnunartímann til klukkan 22 um helgar út ágústmánuð en með samþykktinni nú er verið að festa fyrirkomulagið í sessi.
Í greinargerð með tillögunni segir að tillagan sé í samræmi við áherslur meirihlutans um lengdan opnunartíma sundlauga.
Einnig segir að tillagan hafi verið kostnaðarmetin á 31 milljón króna á ársgrundvelli.
Í fundarferð menningar- og íþróttaráðs frá í apríl kom fram að lenging opnunartíma um klukkustund kosti að jafnaði um 2,5 milljónir króna á mánuði í heildina fyrir allar laugar.
Reykjavíkurborg rekur átta sundlaugar – Laugardalslaug, Árbæjarlaug, Breiðholtslaug, Dalslaug, Grafarvogslaug, Sundhöll Reykjavíkur, Vesturbæjarlaug og Klébergslaug á Kjalarnesi.