Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hefur sagst ætla að segja af sér innan nokkurra vikna.
Þessu greindi hann frá þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína á samkomu í Belgrad, höfuðborg Serbíu, fyrr í dag. „Ég verð forseti í aðeins nokkrar vikur og síðan mun ég segja af mér,“ sagði hann. Seinna kjörtímabili Vučić átti að ljúka í maí 2027.
Vučić hefur gegnt embætti forseta Serbíu frá árinu 2017. Áður hafði hann verið forsætisráðherra frá árinu 2014.
Mikið hefur verið um mótmæli í landinu síðustu vikur þar sem mótmælendur hafa kallað eftir því að þingkosningum verði flýtt í landinu.
Mótmæli hafa reglulega verið í Belgrad eftir að 16 létust þegar steinsteypt þak á lestarstöð hrundi niður í borginni Novi Sad í nóvember 2024. Stúdentar hafa leitt mótmælin og fyrst um sinn kölluðu mótmælendur eftir því að gerð yrði ítarleg rannsókn á slysinu. Margir hafa kennt spillingu og vanrækslu stjórnvalda um harmleikinn.
Með tímanum hafa mótmælin beinst meira gegn forsetanum og margir mótmælendur vildu að Vučić viki úr embætti.
Vučić sagði á samkomunni að hann myndi hjálpa flokknum sínum, Serbneska framfaraflokknum, að vinna forsetakosningarnar og þingkosningar sem ættu samkvæmt áætlun að vera í desember 2027. Hann hefur ekki tilgreint hvenær hann muni segja af sér né hvenær hann muni leysa upp þingið, sem er forsenda fyrir snemmbúnum þingkosningum.