Leiðangur samtaka Pauls Watsons gerir hvalverndunarsinnum ógagn, segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann segir ekkert hafa komið Kristjáni Loftssyni forstjóra Hvals betur en þau verk sem Paul Watson hafi unnið.
Paul Watson sem var í samtökunum Sea Sheapard lýsti yfir ábyrgð á því að hafa sökkt tveimur hvalveiðibátum Hvals hf. í Reykjavíkurhöfn 1986. Nú er skipið Bandero á vegum samtaka hans Captain Paul Watson Foundation á leið til landsins í þeim tilgangi að gera allt til að koma í veg fyrir veiðar Hvals hf. að því er Watson segir.
Ekkert komið Kristjáni Loftssyni betur
Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtakanna segir að aðgerðirnar 1986 hafi valdið miklum skaða á Íslandi:
„Fólki mislíkar skemmdarverk,“ segir Árni, „og fólk skildi ekki af hverju þeir væru að sökkva hvalbátum. Og ég held að slíkar aðgerðir séu það versta sem hægt er að gera fyrir umhverfið. Og ég mun kannski sérstaklega benda á að ekkert hefur komið Kristjáni Loftssyni betur en þau verk sem að Paul Watson hefur unnið hér.“
Hvernig líst þér á þessar fyrirætlanir sem boðaðar hafa verið hjá Paul Watson?
„Mér finnst akkúrat þetta með aðgerð 86 vera ógeðfellt vegna þess að hann er að vísa þarna í skemmdarverk. Og svoleiðis gera ekki alvöru náttúruverndarsamtök nokkurs staðar. Þeirra regla er yfirleitt friðsamleg mótmæli og innan ramma laganna, ef maður getur sagt svo, og valda ekki tjóni.“