Árásir hafa staðið yfir á Kúveit og Bahrein í nótt. Loftvarnarflautur fóru í gang í Barhein og íbúar voru hvattir til að fara í öruggt skjól og halda ró sinni. Bandarísk herstöð er í Bahrein.
Þá hefur herinn í Kúveit einnig varað íbúa landsins við að leita skjóls vegna flugskeyta- og drónaárása, samkvæmt tilkynningu hersins á X.
Íranski byltingarvörðurinn segir árásirnar á Kúveit og Bahrein vera hefndarárásir fyrir árásir Bandaríkjanna í gær. Í tilkynningu frá byltingarverðinum segir að þeir hafi eyðilagt hernaðarinnviði í bandarísku Ali al-Salem-herstöðinni í Kúveit og herstöð sjóhersins í Salman-höfninni í Bahrein.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social í gær að bandarískum tíma að bandarískar herflugvélar hefðu gert árásir á flugskeyta- og drónageymslu Írana og ratsjár við ströndina vegna þess að Íranar hafi brotið vopnahléið aftur.
„Það gæti farið svo á einhverjum tímapunkti að við getum ekki lengur verið sanngjörn og við neyðumst til að klára hernaðarlega það verkefni sem við hófum með góðum árangri. Ef til þess kemur verður Íslamska lýðveldið Íran ekki til að því loknu,“ sagði Trump í færslu sinni.
Íranskir fjölmiðlar hafa greint frá miklum sprengingum nærri Sirik og Qeshm svæðunum í suður Íran.