Von er á talsverðri bleytu og hvassviðri víða um land framan af degi. Á morgun snýst í suðvestanátt og áfram er útlit fyrir vætu. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands:
Lægðirnar þaulsetnu sem stjórna veðrinu um þessar mundir færa vætu um allt land í dag með stífri norðaustanátt á norðvestanverðu landinu og með suðausturströndinni. Annars staðar verður hægari vindur.
Eftir hádegi verður önnur lægðarmiðjan yfir miðju landinu og dregur þá bæði úr vindi og úrkomu. Hitatölur verða á bilinu 7 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.
Á morgun halda lægðirnar tvær í sitthvora áttina, til norðausturs og suðvesturs og við það snýst í suðvestanátt og áfram er útlit fyrir vætu víða um land, mögulega kröftugum skúrum norðaustantil. Hiti verður á bilinu 9 til 17 stig, en þá verður hlýjast á Austfjörðum.