Maður réðst að hópi drengja í sundlaug á höfuðborgarsvæðinu í gær. Drengirnir höfðu rennt sér á eftir manninum í rennibraut og lentu á manninum og ungum syni hans. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan fimm síðdegis í gær til fimm í morgun. Ekki kemur fram í hvaða sundlaug atvikið átti sér stað, en það var í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem nær yfir miðborg, Vesturbæ og Seltjarnarnes.
Lögreglan fékk einnig tilkynningu um ungmenni að brjótast inn í skóla og var það athæfi stöðvað. Þrjú slys voru tilkynnt á smáfarartækjum og eru allir ökumenn grunaðir um ölvun við akstur þeirra.
Alvarleg líkamsárás var framin á sportbar og árásaraðilinn handtekinn og vistaður í fangageymslu. Tilkynnt var um leigubíla við Hjarta Hafnarfjarðar sem tepptu umferð bifreiða og var þeim vísað á brott.
Þá barst lögreglunni tilkynning frá ferðamönnum sem komust ekki inn í íbúð sem þeir höfðu leigt á leiguvefsíðu. Grunur leikur á að svindlað hafi verið á ferðamönnunum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu lögreglunnar.
Fimm gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt. Alls voru 76 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan 17:00 í gær til 05:00 í morgun.