Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægðirnar þaulsetnu sem stjórna veðrinu um þessar mundir færi vætu um allt land í dag með stífri norðaustanátt á norðvestanverðu landinu og með suðausturströndinni. Annars staðar verði hægari vindur.
Hann segir að eftir hádegi verði önnur lægðarmiðjan yfir miðju landinu og dragi þá bæði úr vindi og úrkomu.
Á morgun halda lægðirnar tvær í sitthvora áttina, til norðausturs og suðvesturs, og við það snýst í suðvestanátt og áfram er útlit fyrir vætu víða um land, mögulega kröftugum skúrum norðaustantil. Hiti verður á bilinu 9 til 17 stig, en þá verður hlýjast á Austfjörðum.
Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð vega á vef Vegagerðar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag: Suðvestan og vestan 5-10 m/s og dálítil rigning, en skúrir á norðaustanverðu landinu. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Austfjörðum.
Á þriðjudag: Gengur í sunnan 8-13 m/s með rigningu, en hægari vindur og að mestu bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustan- og austantil.
Á miðvikudag: Sunnan 8-13 m/s og væta með köflum víða um land. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil.
Á fimmtudag: Stíf suðvestanátt með áframhaldandi vætu um mestallt land. Kólnar heldur í veðri.
Á föstudag: Vestanátt með skúrum eða rigningu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á sunnanverðu landinu.
Á laugardag: Útlit fyrir hæga suðvestanátt og lítilsháttar vætu. Hiti 7 til 13 stig.