Við verðum að vinda ofan af miklu af innleiðingu á evrópsku regluverki vegna þess að íslensk stjórnvöld hafa trassað að nýta undanþáguheimildir sem eiga við lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu. Miðað við stærðarreglur ESB fellur um 80% íslenskra fyrirtækja undir þessar undanþágur. Þetta er forgangsverkefni í því að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Annað atriði er vinnumarkaðsmódelið. Við náum ekki niður verðbólgu og vöxtum á meðan við búum við óbreytt vinnumarkaðsmódel. Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Þorsteinn Víglundsson: Illa útfærð innleiðing á Evrópureglum hefur valdið tortryggni atvinnulífsins gagnvart evrópsku regluverki