Hópar búrhvala hvor sínum megin í Miðjarðarhafinu nota ólíkar mállýskur til að eiga í samskiptum. Þetta segja niðurstöður nýrrar rannsóknar.
Búrhvalir eiga samskipti með hljóðum og nota til þess raðir stuttra smella sem kallast „kóðar“.
Í frétt the Guardian segir að vísindamenn hafi tekið upp hljóð í hópum búrhvala í Miðjarðarhafi frá árunum 2003 til 2021. Þeir komust að því að kóðar hvalanna innihéldu flestir fjögur smelluhljóð. Hrynjandi hljóðanna var þó mismunandi milli hópa búrhvala í Austur- og Vestur-Miðjarðarhafi.
Vísindamenn segja þetta sambærilegt mállýskum í tungumáli manna.
Mállýskan í austri nýrri
Kóðar hvalanna í vesturhluta Miðjarðarhafs samanstanda yfirleitt af þremur smelluhljóðum með reglulegu bili, hléi og svo öðru smellihljóði. Hvalir í austurhluta hafsins nota hraðari útgáfu þessara kóða.
Það er þó skörun milli mállýsknanna. Búrhvalir í austurhluta Miðjarðarhafsins nota stundum vestrænu mállýskuna sem bendir til þess að búrhvalir hafi fyrst komið sér fyrir í vesturhluta Miðjarðarhafsins áður en þeir dreifðust austur á bóginn og þróuðu með sér hraðari mállýsku.
Hvalirnir nota mállýskurnar til að mynda félagsleg tengsl og hópur búrhvala vill nær einungis umgangast annan hóp ef þeir deila sömu mállýsku og tilheyra þar með sömu „hljóðættinni“.