Fjórtán fórust þegar þyrla í eigu sádiarabíska olíurisans Aramco hrapaði nærri austurströnd Sádí-Arabíu í morgun. Þeir sem létust voru allir ríkisborgarar Sádi-Arabíu.
Aramco hóf að flytja hráolíu frá Persaflóa að nýju á föstudag, en áður hafði starfsemi fyrirtækisins legið niðri í nærri fjóra mánuði frá lokun Hormússund. Þyrlan hrapaði vestan við sundið.
Samkvæmt ríkisfjölmiðlinum í Sádi-Arabíu vinna yfirvöld nú að því að rannsaka tildrög slyssins.