Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, lagði af stað úr Reykjavíkurhöfn um klukkan þrjú síðdegis. Stefnan er sett á slóðir hvalveiðibáta Hvals hf. og búist við að það verði komið að hvalbátunum seint í nótt eða í fyrramálið.
Ástæðan eru hótanir Paul Watson-samtakanna, sem sigldu inn í íslenska efnahagslögsögu í gær. Samtökin hafa hótað því að stöðva hvalveiðiskipin. Áhöfn skipsins er farin að deila staðsetningu sinni með Gæslunni eftir að hafa sniðgengið kröfu um það fyrst um sinn.
„Við munum gera það sem þarf að gera til að vernda líf og limi og forða slysum. Það á við um báða aðila. Við verðum þarna með skip og vel búna menn,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Hann segir að Landhelgisgæslan taki stöðuna alvarlega og viðbrögðin hafi verið undirbúin í samráði við dómsmálaráðherra.