Herjólfur siglir enn á annarri skrúfunni og getur ekki annað fullri sumaráætlun. Því var ferjan Baldur fengin til að bæta það upp en nú er komin upp smávægileg vélarbilun í honum og þarf að fækka ferðum um helming.
Framkvæmdastjóri Ferjuleiða, sem sér um Baldur, segir að það sé hægt að sigla ferjunni en það hafi þurft að minnka álag á hana. Á morgun fáist varahlutir og mannskapur til að gera við bilunina.
„Það hafa komið aðeins óviðráðanlegar aðstæður, þannig hann getur ekki siglt sína fullu áætlun í dag. En annars siglum við samt sem áður 10 ferðir í dag og komum vonandi öllum til síns heima,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson framkvæmdastjóri Herjólfs.
Orkumótið var haldið í Vestmannaeyjum um helgina og því margir á heimleið.
„Vandræðakafla að ljúka“
Áætlun Herjólfs hefur verið skert síðan um miðjan apríl. „Þetta hefur verið mjög langur tími og viðgerðartíminn hefur dregist, sem skýrist einkum og aðallega af því að það tafðist afhending á koparvír sem var lengi í framleiðslu,“ segir Ólafur.
„Hann er komin, hann kom á verkstæði í Hollandi í byrjun síðustu viku og vinnan við viðgerðina gengur mjög vel núna.“
Um miðjan júlí er áætlað að Herjólfur fari í slipp í fjóra daga og taki svo við siglingum að fullu og Baldur fari aftur í Stykkishólm.
„Þá vonum við að þessum vandræðakafla sé lokið hjá okkur,“ segir hann.
Ólafur segir að farþegafjöldinn í júní sé á pari við fyrri ár en í vor var Landeyjahöfn mikið ófær og Herjólfur sigldi á takmörkuðu afli, sem þýddi að meira en helmingi færri fóru til Eyja í apríl eða 12 þúsund í stað um 30 þúsund árið á undan. Í maí fór farþegafjöldinn úr 50 þúsund niður í 35.
50-100 krónu hækkun
Í byrjun júní hækkaði gjaldskrá Herjólfs um fjögur prósent vegna rekstraraðhalds, sem jafngildir 50 króna hækkun á fjargjaldi fyrir heimamenn en 100 krónum fyrir aðra.
„Sem er í rauninni bara afleiðing af þessu ástandi sem við höfum verið að takast á við það sem af er ári.“