BBC hefur eftir Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, að tildrög slyssins séu í rannsókn. Flugmaður vélarinnar og tíu farþegar eru sagðir hafa látist en flugvélin hafi tekið á loft á Nancy-Essey flugvellinum og hrapað stuttu frá vellinum klukkan ellefu í dag að staðartíma.
Fréttaveita Le Monde og AFP segir slysið vera mannskæðasta „almenna“ flugslys í sögu landsins.