Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að Reykjanesbraut verði lokuð til suðurs við Sæbraut þennan tíma og þrengt verði að umferð í eina akrein í norðurátt meðan á framkvæmdunum stendur. Einnig verði rampar frá Miklubraut niður á Reykjanesbraut til suðurs lokaðir.
Framkvæmdirnar muni halda áfram annað kvöld, mánudagskvöld 29. júní, kl 20:00 til 07:00 aðfaranætur þriðjudags, 30. júní.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið.