33 hefur verið bjargað úr húsarústum í Venesúela um helgina, þeirra á meðal voru tveir ellefu ára drengir. Björgunarsveitir björguðu þeim úr húsarústum með nokkurra klukkustunda millibili í dag. Frá þessu greinir Delcy Rodríguez, settur forseti í Venesúela.
Enn er tuga þúsunda saknað í landinu eftir tvo stóra jarðskjálfta sem þar urðu á miðvikudagskvöld. Skjálftarnir voru 7,2 og 7,5 að stærð. Hjálparstofnanir segja það áríðandi að ná til fólks á fyrstu 48 til 72 klukkustundunum eftir hamfarir sem þessar. Því dvíni vonin eftir því að finna fólk á lífi með hverjum klukkutímanum sem líður.
1.450 hafa fundist látin samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum.
Alþjóðlegar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela til að leita að fólki sem er fast í húsarústum. Íbúar eru afar ósáttir við það hversu hægt björgunarstörfum miðar.
Fréttir hafa borist af fólki sem leitar í örvæntingu að týndum ástvinum sínum með því að grafa með höndum í húsarústum. Viðmælendur BBC segja að sums staðar megi heyra raddir fólks sem er fast í húsum sem hafa hrunið. Ekkert sé hægt að gera fyrr en stórvirkar vinnuvélar komi til að aðstoða við björgun.
AFP greinir frá því að björgunarmenn frá Frakklandi og Bandaríkjunum hafi bjargað feðgum úr húsarústum í Caraballeda í dag. Borgin er í héraðinu La Guaira sem varð einna verst úti í jarðskjálftunum á miðvikudag.