Óvíst er hvað verður um Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit, eftir að greint var frá því að alla þjónustu yrði að flytja burt úr húsinu vegna myglu. Hátt í þúsund hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda um að húsunum verði bjargað og starfsemi haldið áfram.
Í 99 ár hefur fólki verið hjúkrað á gamla Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit. Á árum áður var það kallað Heilsuhæli Norðurlands og var í áratugi sjúkrahús fyrir berklasjúklinga.
Núna er Kristnesspítali hluti af Sjúkrahúsinu á Akureyri, þar er rekin öldrunar- og endurhæfingardeild og starfsfólk býr í húsunum í kring.
En það verður dauft yfir Kristnesi eftir sumarið þegar öll húsin verða rýmd vegna rakaskemmda og myglu.
Susanne Neumann, er ein þeirra sem hefur áhyggjur af skertri þjónustu eftir lokun. Þegar vel gekk hafi um 300 skjólstæðingar sótt þjónustu á Kristnes á ári. Hún telur mjög ólíklegt að þeim takist að þjónusta sama fjölda í leiguhúsnæði.
Á Kristnesi er fólk af ýmsum ástæðum en margir eru þar að ná undir sig fótunum á ný eftir slys eða erfiða sjúkdóma.
Síðar í sumar verður húsinu lokað og ætlunin er að leigja húsnæði á Akureyri undir þjónustuna til bráðabirgða, auk nokkurra legurýma sem á að útbúa inni á SAk.
Stjórnendur SAk segja alls óvíst hvað verði um Kristnes, en þeirra meginmarkmið sé að standa vörð um þjónustuna í þessum krefjandi aðstæðum.
Óttast að Kristnes drabbist niður á 100 ára afmælinu
Ekki er vitað hvað það kostar að koma húsinu í stand aftur - að sögn stjórnenda. Starfshópur í ráðuneytinu sé að vinna að málinu.
Íbúar Eyjafjarðarsveitar og aðrir velunnarar Kristness hafa látið í sér heyra - starfsemin sé samfélaginu mikilvæg og þau óttist að áralangur viðhaldsskortur verði til þess að byggðin verði látin drabbast niður.
Í einu húsanna á Kristnesi hefur Hælið verið rekið síðan 2018, setur um sögu berkla og kaffihús. Þar eru sagðar sögur Íslendinganna sem börðust við Hvíta dauða og einstakt safn af bréfum þeirra.
María Pálsdóttir, hælisstýra átti frumkvæðið að undirskriftasöfnun - þar sem skorað er á ríkið að fjármagna viðgerðir og tryggja framtíð Kristness.
Hún hefur verið látin vita að líklega styttist í uppsögn á leigusamningi hennar við sjúkrahúsið.
„Á næsta ári, tíunda sumarið mitt hérna í röð er kannski síðasta sumarið“, segir María. „Vonandi þarf ekki að pakka þessari sýningu ofan í kassa því þá veit maður ekki hvort henni verði nokkurn tímann pakkað upp aftur.“