Mikil óvissa ríkir um siglingar flutningaskipa um Hormússund. Vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna stendur völtum fótum og skipafélög segja ástandið skapa ringulreið og hættu.
Bandaríkin og Íran undirrituðu viljayfirlýsingu um vopnahlé fyrir rúmri viku síðan. Í henni felst meðal annars að opnað verði fyrir skipaumferð um Hormússund að nýju. Þrátt fyrir vopnahléð situr þó fjöldi skipa enn fastur í Hormússundi og hafa ríkin skipst á árásum síðustu daga. Þá hefur Ísraelsher hafið árásir í suðurhluta Líbanons að nýju.
Í frétt CNN segir að í ljósi áframhaldandi spennu á milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran hafi skipafélög verið sett í nær ómögulega stöðu þar sem þau viti ekki hvaða leið sé öruggust um sundið.
Áður sigldu skip að mestu eina leið um sundið en um þessar mundir eru þrjár leiðir í notkun. Ein þeirra liggur um miðju sundsins, önnur við strönd Óman og sú þriðja norðar þar sem Íran vill hafa stjórn á siglingum.
Samkvæmt sérfræðingum í skipaflutningum hjá upplýsingafyrirtækinu Kpler óttast skipafélög annars vegar að verða fyrir árásum Írana ef þau nota leiðir sem Íran samþykkir ekki. Hins vegar óttast þau refsiaðgerðir af hálfu Vesturlanda fari þau eftir fyrirmælum Írans. Þannig skapast mikil óreiða í sundinu sem getur haft í för með sér aukna hættu fyrir starfsmenn skipanna.