Ástralía og Vanúatú undirrituðu í dag yfirgripsmikinn viðskipta- og öryggissamning. Samningurinn kveður á um að erlend ríki megi ekki byggja upp herstöð á eyríkinu Vanúatú.
Stjórnvöld í Canberra hafa lýst yfir áhyggjum af því að ráðamenn í Kína vilji koma á fót herstöð á Vanúatú.
Skip kínverska flotans hafa reglulega haft viðkomu í höfnum á Vanúatú. Kínversk stjórnvöld fjármögnuðu þar að auki stækkun hafnarinnar í Luganville sem lauk fyrir um átta árum. Þar var áður stærsta flotastöð Bandaríkjanna í Suður-Kyrrahafi en borgin er sú næstfjölmennasta á Vanúatú.
Þessi aðkoma kínverskra stjórnvalda vakti áhyggjur, bæði Ástrala og Bandaríkjamanna, um að Kínverjar ætluðu sér að setja þar á fót flotastöð.
Stjórnvöld í Kína og Vanúatú sögðu stækkunina hafnarinnar nauðsynlega fyrir móttöku skemmtiferðaskipa.
Samningur Ástralíu og Vanúatú var undirritaður af Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, og Jotham Napat, forsætisráðherra Vanúatú.
Ástralir skuldbinda sig til að veita Vanúatú aukinn efnahagslegan stuðning. Helsti lánadrottinn eyríkisins er Kína.
„Þetta þýðir að Ástralir geta verið vissir um að þarna rísi ekki erlend herstöð,“ sagði Albanese við blaðamenn eftir að samningurinn var undirritaður í Canberra í dag.