Pakistanski herinn gerði loftárásir í austurhluta Afganistan í nótt. Attaullah Tarar, ráðherra upplýsingamála og fjölmiðla í Pakistan, segir árásirnar hafa beinst gegn herskáum hópum. Þær séu svar við mannskæðum árásum sem gerðar voru í Karachi í Pakistan á laugardag.
Tarar segir árásir næturinnar hafa beinst gegn þremur skotmörkum í héruðunum Paktika, Paktia og Kunar í austurhluta Afganistan. Í þeim hafi 25 fallið. Hann segir herinn einnig hafa ráðist í hernaðaraðgerðir á jörðu niðri.
Pakistanar hafa gert röð loftárása á Afganistan á síðustu mánuðum, nú síðast fyrr í þessum mánuði.
Stjórnvöld í Islamabad saka stjórn talibana í Afganistan um að skjóta skjólshúsi yfir herskáa hópa sem bera ábyrgð á árásum á Pakistan.
Þessum ásökunum hafa stjórnvöld í Kabúl ítrekað hafnað og segja almenna borgara hafa verið drepna í fyrri árásum Pakistana. Zabihullah Mujahid, talsmaður talibanastjórnarinnar, segir tugi almennra borgara hafa verið drepna eða særða í árásunum í nótt.