Veðurspár gera ráð fyrir áframhaldandi vætutíð fram eftir vikunni. Í dag verður sérstaklega skúrakennt á Norðausturlandi og einhver væta víðast. Fram eftir degi verður bjart og fallegt á Austurlandi en stefnir í öflugar skúradembur síðdegis. Hiti að 17 stigum, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Í komandi viku er útlit fyrir vætusamar suðlægar og vestlægar áttir, einkum sunnan- og vestanlands. Norðaustantil er það sér í lagi skúrakennt veður.
Í dag blæs suðvestlægur vindur á okkur og einhver væta fellur víða. Á Austurlandi gæti fyrri hluti dags orðið nokkuð bjartur og fallegur, en seinni partinn stefnir í öflugar skúradembur. Þokubakkar og súld læðast einnig með norður- og austurströndinni fram eftir degi. Hiti verður upp í um 17 stig á Austfjörðum þegar best lætur.
Á morgun spáir sunnanátt með rigningu af og til, en bjart með köflum norðaustan- og austanlands og hiti aftur upp í 17 gráður á svipuðum slóðum. Annað kvöld eru horfur á að rigningarbakki komi inn á vestanvert landið og þá bætir í úrkomu á þeim slóðum.
Fram eftir vikunni spáir áframhaldandi vætutíð og kólnar heldur þegar líður að helginni.