Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, kom að Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, í gærkvöld á siglingu vestur af landinu. Þór fylgir nú Bandero á siglingu en ekki er vitað að fullu hvert leiðin liggur. Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Þór lagði af stað úr Reykjavíkurhöfn um klukkan þrjú síðdegis í gær. Um borð eru fimm sérsveitarmenn og fjórir séraðgerðarmenn Landhelgisgæslu auk áhafnar. Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir viðbrögðin hafa verið undirbúin í samráði við dómsmálaráðherra.
Paul Watson-samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals hf. og sagst ætla að binda enda á hvalveiðar á Íslandi.
Flugvél Landhelgisgæslanunnar kom að Bandero á laugardag, rétt áður en skipið sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu, og óskaði eftir því að kveikt yrði á staðsetningarbúnaði í skipinu. Fyrst um sinn sniðgekk Bandero kröfu Landhelgisgæslunnar en nú deilir áhöfn skipsins staðsetningu sinni á klukkustundar fresti.