Aðalmeðferð í hinu svokallaða Edition-máli heldur áfram í dag. Ming Ting Mancel er sökuð um að hafa banað þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn. Eiginmaður hennar og dóttir þeirra fundust bæði látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í Reykjavík síðasta sumar.
Mancel gaf sjálf skýrslu við upphaf aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur 12. júní. Aðalmeðferð heldur áfram í dag og Karl Ingi Vilbergsson héraðssaksóknari á ekki von á að hún klárist í dag.
Hann segir að ýmislegt sé enn verið að rannsaka.
Mancel er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns. Hún hefur sagt að fjölskyldan hafi komið til Íslands til að deyja saman. Hugmyndin hafi komið til því að eiginmaður hennar hafi verið með banvænan sjúkdóm.