Þar segir einnig að tveir hafi verið handteknir í 101 Reykjavík fyrir eignaspjöll, brot á lögreglusamþykkt, vörslur fíkniefna og fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Þá varð umferðarslys í Bústaðarhverfi en ökumaður flúði af vettvangi.
Þá var ökumaður í Hafnarfirði handtekinn fyrir ölvunarakstur og sextán ára piltur kærður fyrir að aka bíl í Garðabæ. Þá var ökumaður í Kópavogi kærður en hann var á nagladekkjum þann 28. júní. Þrír slösuðust í umferðarslysi í Árbæ og voru bílar dregnir af vettvangi.