Skipið, sem er á vegum samtakana Watsons, „The Paul Watson Foundation“, er nú komið inn í íslenska lögsögu og heita samtökin því að stöðva veiðar Hvals með góðu eða illu.
Þór lagði af stað um klukkan þrjú í gærdag og eru menn frá sérsveit Ríkislögreglustjóra með í för. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir í samtali við fréttastofu að Þór hafi komið að Bandero í gærkvöldi og fylgi nú skipinu eftir við hvert fótmál.
Ekki er gefið upp hvort hvalbátarnir séu á sömu slóðum en Ásgeir segir að hvalveiðiskipin hafi heimild til að slökkva á staðsetningartækjum sínum telji þau öryggi sínu ógnað og að sú heimild hafi verið nýtt. Þess í stað senda þau upplýsingar um staðsetningu sína handvirkt til Gæslunnar.