Þá bætir í rigningu og vind á vestanverðu landinu annað kvöld. Hiti níu til sautján stig að deginum, hlýjast á Austurlandi og Austfjörðum að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Suðlæg átt 5-13 m/s, hvassast með suðausturströndinni. Dálítil rigning, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Bætir í rigningu á vestanverðu landinu um kvöldið. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi.
Á miðvikudag:
Sunnan 8-13 m/s, rigning eða skúrir og hiti 8 til 12 stig. Bjartviðri norðaustantil á landinu með hita að 17 stigum.
Á fimmtudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og skúrir eða rigning um mest allt land. Hiti 7 til 13 stig.
Á föstudag:
Vestan og norðvestan 5-13 og víða vætusamt, en úrkomulítið á suðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðaustanlands.
Á laugardag:
Sunnan og suðvestan 3-8 og lítilsháttar rigning seinni partinn, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 14 stig, hlýjast norðaustantil.
Á sunnudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt og skúri. Hiti breytist lítið.