Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins kemur fram að hitamet hafi fallið víða í álfunni, meðal annars í Þýskalandi, Póllandi og í Tékklandi. Tedros Adhanom Ghebreyesus framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segir að hiti líkt og þessi geti haft alvarleg áhrif í för með sér á heilsufar fólks.
Tedros segir að evrópsk heimili, vinnustaðir og skólar hafi ekki verið byggðir fyrir slíkt hitastig. Evrópa sé sú heimsálfa þar sem hiti hafi hækkað mest undanfarin ár, tvöfalt á við það sem gerist að meðaltali í heiminum. BBC segir frönsk heilbrigðisyfirvöld tengja um þúsund andlát við hitann frá því síðasta miðvikudag. Flestir sem látist séu yfir 65 ára.
Í gær sunnudag féll hitamet í Þýskalandi en í austari hluta landsins skammt frá landamærum landsins að Póllandi mældist hitinn 41,7 gráður. Þá féll hitamet einnig í Póllandi þar sem hitinn mældist 40,5 gráður. Tedris segir ljóst að bregðast þurfi við.
„Af völdum loftslagsbreytinga og hlýnunar jarðar er fyrirbærið „hitabylgja sem áður gekk yfir einu sinni á mannsaldri“ nú að verða nær árlegur viðburður,“ skrifaði Tedros. Hann hvetur Evrópulönd til að „innleiða aðgerðaáætlanir vegna hitabylgna“ sem lið í því að vernda heilsu fólks í ljósi loftslagsbreytinga.