Ríkið dæmir ríkinu í hag

Geir Ágústsson skrifar:
Landsréttur staðfesti sýknu íslenska ríkisins af kröfu manns sem krafðist bóta vegna tveggja vikna sóttkvíar sem hann þurfti að sæta árið í kórónuveirufaraldrinum. Ríkið hefur þar með dæmt ríkinu í hag. Ríkið má búa til allskonar reglur sem mismuna fólki á grundvelli lyfjanotkunar og reynir með lögregluvaldi að loka þá inni sem taka ekki gagnslaust glundur sem veitir hvorki vörn né forvörn.
Þetta kemur ekki á óvart og mig grunar að ríkið hafi áhuga á því að auka enn völd sín til að stjórna fólki. Það getur ríkið eftir því sem tækninni fleygir fram. Næst þegar tekst að sannfæra fólk um að plágan er farin af stað verða komnir drónar í loftið, vopnaðir gervigreind sem finnur þá sem svindla á sóttkví og samkomubanni og sigar lögreglunni á þá. Þá verður erfiðara fyrir fólk eins og mig að svindla á sóttkví, svindla á fjarlægðarmörkum og hunsa grímuskyldu.
Ég mun vitaskuld reyna en það verður erfiðara.
Það er undir mér og þér komið að verja okkar réttindi til að fá að vera í friði. Ef einhverjum dettur í hug að dómstólar komi til varnar þá sýna nýleg dæmi að því geti menn gleymt. Ríkið mun dæma ríkinu í hag. Og þér í óhag.