Amal Clooney segir að það hafi verið „auðveldara“ að rata í gegnum líf sitt og starfsferil áður en hún kynntist og giftist George Clooney. Amal er 48 ára og eiga þau George tvö börn saman.„Það var auðveldara þegar ég gat ákveðið hvers konar umfjöllun ég fengi,“ sagði mannréttindalögfræðingurinn á viðburði Cartier Dialogues í Bangkok fyrr í þessum mánuði.„Þetta var eitthvað nýtt að sigla í gegnum,“ bætti hún við.
Lýsir því hvernig lífið var auðveldara áður en hún kynntist Clooney