Varðskipið Þór fylgir nú skipinu Bandero eftir í kjölfar hótana hvalaaðgerðasinnans Paul Watson. Bandero er á vegum Captain Paul Watson Foundation og er nú inni í íslenskri lögsögu undir því yfirlýsta markmiði að stöðva hvalveiðar Íslendinga. Um borð í Þór eru meðlimir sérsveitar Ríkislögreglustjóra.Aðgerðir Watson eru gerðar undir nafninu Operation 86 sem vísar til þess þegar Watson stóð fyrir því að sökkva hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn.
Watson fær kaldar kveðjur: „Varla ætla íslensk stjórnvöld að sýna þessum vitleysingi aðrar og betri viðtökur“