Yfirmaður konu sem fannst látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra segir hana alltaf hafa verið glaðlega, kurteisa og duglega í vinnunni. „Hún var eins og sólargeisli á skrifstofunni,“ sagði hann þegar hann gaf skýrslu fyrir dómi í morgun.
Aðalmeðferð í svokölluðu Edition-máli heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ming Ting Mancel er ákærð fyrir að hafa orðið Catherine Mancel, þrítugri dóttur sinni, að bana í samverknaði við eiginmann sinn.
Mancel er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns. Hún hefur sagt að fjölskyldan hafi komið til Íslands til að deyja saman. Hugmyndin hafi komið til því að eiginmaður hennar hafi verið með banvænan sjúkdóm.
Teymisstjórinn segir Catherine ekki hafa lýst efasemdum um ferðina til Íslands þegar hún bað hann um frí fyrir ferðalagið í júní 2025. Hann telur hins vegar að henni hafi þótt óþægilegt að biðja um frí með litlum fyrirvara. Hún væri vön að gera allt vel og tímanlega.
Líðan Catherine óbreytt í aðdraganda ferðarinnar
Catherine hafi sagt að foreldrar hennar hefðu skipulagt ferðina og hún hafi ekki vitað af henni fyrr en seint. Hún hafi ætlað að vinna fjarvinnu einn eða tvo daga á meðan hún var á Íslandi en ekki gert það.
Hefði hún vitað af ferðinni hefði hún gefið okkur meiri fyrirvara til að skipuleggja í kringum fríið hennar, segir teymisstjórinn.
Hann segist ekki hafa tekið eftir breytingu á hegðun eða líðan Catherine fyrir ferðina fyrir utan óþægindin á fundinum þar sem hún bað um fríið.
Fyrir ferðalag Catherine til Íslands skildi hún eftir gjafir til samstarfsfólksins. Teymisstjórinn segir þetta ekki hafa verið eitthvað sem hann hafi vanist á sínum tíma á skrifstofunni.
Catherine hafi gefið honum litla gula prjónaða hænu sem hann vissi ekki hvort hún hafi prjónað hana sjálf.
Teymisstjórinn segist sjálfur hafa verið í fríi á sama tíma en að honum hafi síðar verið sagt að hún hefði ekki mætt til vinnu.
Sömuleiðis hafi honum verið sagt að hún hefði skilið eftir tölvuna sína og aðgangskort að skrifstofunni. Þetta rímar við vitnisburð mannauðstjóra á skriftofu Airbnb á Írlandi sem gaf skýrslu fyrir dómi í síðustu viku.