Þar á meðal er einnig Birgir Jónasson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra sem og María Káradóttir settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins til Vísis en lista yfir umsækjendur má sjá neðar í fréttinni.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem sinnti embættinu, tók við embætti ríkislögreglustjóra þann 20. apríl. Auglýst var eftir nýjum einstakling í stöðuna í byrjun júní og kom fram í tilkynningu Stjórnarráðsins að leitað væri að öflugum, framsýnum og umbótadrifnum leiðtoga sem hafi sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum þróun og umbætur, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri löggæslu.
Áður hefur dómsmálaráðherra kynnt að fyrirhugaðar séu breytingar á skipulagi lögreglu, áform um að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur til fimm og mynda þannig stærri og öflugari embætti um land allt. Í þeim áformum felist að sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verði skoðuð sérstaklega.
Listi yfir umsækjendur:
- Serhii Duiko, sjúkraliði á Grund
- Úlfar Lúðvíksson, fyrrv. lögreglustjóri á Suðurnesjum
- Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum
- Birgir Jónasson, lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
- Vera Dögg Guðmundsdóttir, nefndarmaður KNÚ
- María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu