Vladimír Pútín Rússlandsforseti viðurkenndi í fyrsta sinn í gær að Rússar byggju við „nokkurn olíuskort“. Þetta gerði hann á fundi með embættismönnum þar sem áherslan var á olíubirgðir. Hann hét því að styrkja innviði til olíuframleiðslu og auka framleiðsluna.
Úkraínumenn hafa haldið áfram árásum sínum á orkuinnviði Rússlands. Þeir sprengdu í gær upp olíuhreinsunarstöð í suðurhluta landsins, í þetta sinn í Krasnodarfylki. Þar eru framleiddar um fjórar milljónir tonna af hráolíu á ári.
Krasnodarfylki er eitt stærsta olíuframleiðslusvæði Rússlands. Það liggur að Svartahafi.
Á miðvikudag gerðu Úkraínumenn umfangsmiklar loftárásir á Sevastopol, stærstu borg á Krímskaga, þar á meðal á olíuinnviði.
Viðbrögð Rússa, sem innlimuðu Krímskaga árið 2014, voru að stöðva eldsneytissölu til almennings til að bregðast við eldsneytisskorti.
Segir að árásir hafi engin áhrif á víglínuna
Í viðtali við rússnesku ríkissjónvarpsstöðina í gær sagði Pútín að árásir Úkraínumanna á olíuinnviði landsins væru „tilraun til að kljúfa rússneskt samfélag“. Hann sagði markmið Úkraínumanna að stöðva framgöngu rússneskra hersveita til þess að bæta samningsstöðu sína fyrir vopnahlésviðræður.
„Við munum ekki gefa þeim þann möguleika,“ sagði Pútín og fullyrti að árásirnar hefðu engin áhrif á ástandið á víglínunni.
Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti hefur lýst yfir vilja sínum til að setjast við samningaborðið fyrir veturinn. Í upphafi mánaðar bauð hann til viðræðna í opnu bréfi og lagði til að þeir myndu hittast í „hlutlausu landi“, til dæmis Sviss eða Tyrklandi.