Þrír slasaðir eftir umferðarslys í Árbænum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt þar sem meðal annars var brugðist við eignaspjöllum, umferðarslysum og brotum á umferðarlögum.
Tveir einstaklingar voru handteknir í miðbænum vegna gruns um eignaspjöll. Þeir eru jafnframt grunaðir um brot á lögreglusamþykkt, vörslu fíkniefna og að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu.
Í Reykjavík varð umferðarslys þegar bifreið hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn yfirgaf vettvang áður en lögregla kom á staðinn og er málið til rannsóknar.
Ökumaður var handtekinn í Hafnarfirði grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Þá var 16 ára ungmenni kært fyrir að aka bifreið í Garðabæ.
Í hverfi 200 var ökumaður kærður fyrir að aka bifreið á nagladekkjum utan leyfilegs tímabils.
Alvarlegast atvik sólarhringsins varð í Árbænum þar sem bifreiðar lentu í umferðarslysi. Þrír einstaklingar slösuðust í slysinu og voru bifreiðarnar dregnar af vettvangi.
Loks var ökumaður rafhlaupahjóls handtekinn í Grafarvogi, grunaður um að hafa stjórnað því undir áhrifum áfengis.