Gróðurspretta hefur verið einstaklega góð þetta árið þar sem gott veður var í vor og byrjun sumars. Oddrún Sigurðardóttir, yfirverkstjóri Ræktunarstöðvar Reykjavíkurborgar, segir að uppskera sumarblóma hafi verið gjöful þetta árið. Framleidd voru í kringum 130 þúsund blóm sem farin eru í dreifingu um borgina.
Nærri ræktunarstöðinni er Trjásafnið í Meltungu í Fossvogsdal. Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogs, segir einnig að spretta hafi verið góð þetta árið og að sjá mætti það sem dæmi á eplatrjám í safninu. Sem dæmi hafi skrauteplatré blómgast í fyrsta skipti í fimmtán ár.