Snorri Másson þingmaður Miðflokksins lýsir yfir miklum efasemdum um hormónabælandi meðferðir fyrir ungmenni í kynáttunarvanda og segir að íslensk stjórnvöld þurfi að endurmeta nálgun sína í þessum málaflokki.
Þetta kemur fram í nýjasta þætti Spjallsins með Frosta Logasyni, þar sem Snorri segir að umræðan um transbörn hafi orðið of þröng og að of lítið rými sé fyrir gagnrýnar spurningar.
„Ég hef miklar efasemdir um hormónabælandi meðferðir ungmenna. Hvað þá í kringum kynþroska eða fyrir kynþroska,“ segir Snorri.
Hann segir að langtímarannsóknir á áhrifum slíkra meðferða liggi ekki fyrir með fullnægjandi hætti og að víða erlendis hafi verið stigin skref til baka.
„Ég held að það sé mjög vafasamt læknisfræðilega og að það liggi ekki fyrir langtíma rannsóknir á áhrifum þess að stöðva kynþroska með svona lyfjum hjá barni,“ segir hann.
Vill að fleiri raddir komi að borðinu
Í viðtalinu gagnrýnir Snorri sérstaklega það sem hann telur of rík áhrif sem Samtökin ’78 hafa í ráðgjöf og nálgun gagnvart börnum sem glíma við kynáttunarvanda.
Hann segir að það sé varhugavert ef ein sjónarmið eða eitt úrræði fái ráðandi stöðu í svo viðkvæmum málum.
„Ég er alls ekki sammála því að Samtökin ’78 eigi að eiga síðasta orðið eða vera eina úrræðið,“ segir Snorri.
Að hans mati þurfi að skoða undirliggjandi þætti betur, svo sem einhverfu, kvíða, félagslega einangrun og önnur andleg vandamál, í stað þess að ganga strax út frá því að kynskipting eða hormónameðferð sé rétta leiðin.
Segir umræðuna oft snúast um annað en börnin sjálf
Snorri segir að gagnrýni á þessa nálgun sé gjarnan túlkuð sem andstaða við réttindi hinsegin fólks, en hann telur þá framsetningu vera alranga.
Hann segir markmið sitt fyrst og fremst vera að tryggja að börn fái bestu mögulegu hjálp.
„Mér er svo í mun um að hjálpa börnum sem eru þarna í þessari stöðu í kynáttunarvanda,“ segir hann.
Segir umræðuna of lokaða
Þingmaðurinn gagnrýnir jafnframt fjölmiðlaumfjöllun um málefnið og segir fáa málaflokka valda jafn miklum taugaviðbrögðum innan ritstjórna.
Að hans mati hefur skapast andrúmsloft þar sem efasemdir um ríkjandi nálgun séu fljótt túlkaðar sem fjandskapur.
„Það er eiginlega enginn málaflokkur á Íslandi sem veldur svona taugaveiklun innan fjölmiðla,“ segir Snorri.
Viðtalið er hluti af nýjasta þætti Spjallsins með Frosta Logasyni, þar sem Snorri ræðir einnig um fullveldi Íslands, ESB-aðild, fjölmiðla og menningarstríð samtímans. Hluta viðtalsins má sjá hér að neðan en viljir þú sjá það í fullri lengd mælum við með áskrift á Brotkast.is