Björgunarsveitir í Skagafirði sóttu slasaðan göngumann í bratta hlíð við Hólmavatn á Hegranesi á laugardagskvöld. Göngumaðurinn hafði slasast alvarlega í brattri hlíð ofan við vatnið. Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar við að flytja manninn á sjúkrahús, en fyrst þurfti að bera manninn niður úr hlíðinni á börum og flytja hann yfir vatnið á slöngubát.
Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að útkallið hafi borist skömmu fyrir klukkan 18 á laugardagskvöld. Tuttugu björgunarsveitarmenn frá Skagfirðingasveit af Sauðárkróki, Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð og Gretti frá Hofsósi fóru á vettvang ásamt sjúkraflutningamönnum, lögreglu og slökkviliði.
Björgunarsveitarmenn þurftu að ganga fyrir vatnið til að komast að slysstað, sem var í talsverðu brattlendi og grýttu landslagi, á meðan slöngubátur frá Skagfirðingasveit var sóttur.
„Þegar fyrstu björgunarmenn komu á vettvang varð ljóst að áverkar voru þess eðlis að óskað eftir þyrlu frá Landhelgisgæslunni. Aðstæður á slysstað voru með þeim hætti að ekki var hægt að lenda, brattar hlíðar alveg ofan í vatn og var því sá slasaði fluttur í sjúkrabörum um borð í slöngubátinn og ferjaður þannig yfir vatnið þar sem sjúkrabíll beið,“ segir í tilkynningu.
Björgunarsveitir úr Biskupstungum og Árborg aðstoðuðu einnig á laugardagskvöld ferðamenn sem höfðu fest jeppa í aurbleytu inn að Lambafelli í nágrenni við Háafoss.
Þá sinntu björgunarsveitarmenn frá Súlum, sem sinnir Hálendisvaktinni í Landmannalaugum um þessar mundir, útkalli vegna slasaðs göngumanns. Sá hafði fallið í brekku á gönguleiðinni frá Landmannalaugum yfir í Hrafntinnusker. Hann komst í skálann í Hrafntinnuskeri af sjálfsdáðum en gat ekki haldið áfram, og var sóttur á bílum.
„Aðstæður á gönguleiðinni eru nú með erfiðara móti, mikill snjór og bleyta sem getur reynst göngufólki erfiður farartálmi,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg.