Varðskip Landhelgisgæslunnar fylgir Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, innan íslenskrar lögsögu en ekki er vitað að fullu hvert leiðin liggur. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Bandero hefur ekki haft uppi á hvalveiðiskipunum Hvali 8 né 9.
Aðgerðir í undirbúningi frá því í maí
Fimm sérsveitarmenn og fjórir séraðgerðarmenn Landhelgisgæslunnar, auk áhafnar, eru um borð í varðskipinu Þór. Skipið lagði af stað frá Reykjavíkurhöfn síðdegis í gær.
Viðbúnaðurinn er að frumkvæði gæslunnar, í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra, og hefur verið í undirbúningi frá því í maí - þegar hótanir Paul Watson-samtakanna, um að binda enda á hvalveiðar á Íslandi, fóru að berast á samfélagsmiðlum.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, baðst undan símaviðtali en segir að ekki hafi staðið á öðru en að taka hótununum alvarlega og af fullum þunga.
Slökkt var á staðsetningarbúnaði Bandero áður en skipið sigldi inn í íslenska efnahagslögsögu og fyrst um sinn sniðgekk áhöfnin kröfu gæslunnar um að kveikja á því - en deilir nú staðsetningu á klukkustundar fresti.
Á siglingu vestur af landinu
Bandero er á siglingu vestur af landinu en ekki er vitað á hvaða leið það er, segir Ásgeir. Hann segist ekki vilja gefa upp hvar hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 eru staðsett. Bandero hafi ekki komist í nálægð við þau. Skipin eru með slökkt á staðsetningarbúnaði til þess að tryggja öryggi sitt.
Hann segir varðskipið Þór halda áfram að fylgja Bandero eftir. Áhöfnin sé til taks og tilbúin að grípa inn í ef þörf er á.
Samskipti við ráðherra fyrst og fremst fólgin í upplýsingagjöf
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, baðst undan viðtali þar sem löggæsluaðgerðir Landhelgisgæslunnar standa yfir.
Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir að samskipti Landhelgisgæslunnar, ráðherra og ráðuneytis hafi fyrst og fremst verið fólgin í upplýsingagjöf um stöðu málsins. Einstaka álitaefni eða ákvarðanir hafi ekki verið borin undir hana en henni verið haldið upplýstri.