Endaði einn í Fær­eyjum í sögu­legri steggjun - Vísir

Endaði einn í Fær­eyjum í sögu­legri steggjun - Vísir

Endaði einn í Fær­eyjum í sögu­legri steggjun - Vísir

Það sem virtist ætla að vera fjörugur strákadagur breyttist í 56 klukkutíma steggjun með óvæntu ferðalagi til Færeyja þar sem Arnór þurfti að vinna sér inn stig með ýmsum leiðum til þess að komast heim.

Platveisla fyrir Vinnueftirlitið

Blaðamaður ræddi við Arnór um þetta en hann kom heim í gærkvöldi og var ansi þreyttur sem er ekki að undra. Hann er reynslunni ríkari og búinn að eignast vini í Færeyjum fyrir lífstíð.

Um sautján strákar komu að skipulagningu steggjunarinnar og segir Arnór að það sé of vægt til orða tekið að þeir hafi lagt mikla vinnu í þetta. Hann hafði hinsvegar verið í nokkrar vikur að undirbúa gigg sem hann hélt að bæði hans á laugardagsmorgun.

Vinir Arnórs komu honum heldur betur á óvart.Ari Páll

„Ég ber fjölbreytta hatta og það er ansi mikið af gera hjá mér á ólíkum sviðum þar sem ég er verktaki víða. Ég er meðal annars að vinna í túrisma, sem uppistandari og veislustjóri og að leika í leikriti. Það er því ekki hlaupið að því að redda fríi fyrir mig. 

Ekki bara hringja strákarnir í alla yfirmenn mína hingað og þangað og redda þessum vöktum sem var búið að setja á mig heldur bjuggu þeir til gervi-viðburð sem var Málþing Vinnueftirlitsins 2026 með þemanu frjáls för launþega og samvinna EES og ESB aðildarþjóða í atvinnu-og félagsmálum. 

Ég er á skrá hjá Móðurskipinu og þau sendu mér formlega beiðni að stýra þessu giggi. Ég hafði aldrei verið með svipaðan viðburð áður og var því búinn að undirbúa mig vel. Þú spyrð kannski hvernig ég get þalið upp viðburðinn svo sleitulaust en ég æfði bara það í viku,“ segir Arnór og skellir upp úr.

Arnór var með atriði fyrir túrista hjá Hallgrímskirkju og safnaði pening.Ari Páll

Nóg af giggum og nóg af áfengi í brúðkaupinu

Hann hafði meðal annars undirbúið ESB pöbbkviss og annað í þeim dúr en segist sannarlega ekki syrgja það að hafa ekki fengið greitt fyrir gigg sem hann hafði eytt miklum tíma í.

„Ekki í eina sekúndu. Með dýpstu virðingu til Vinnueftirlitsins að öllu leyti þá var yndisleg tilfinning að átta sig á því að ég væri ekki að fara að vera inni að kynna allan daginn heldur skemmta mér með vinum mínum.

Strákarnir voru með einhvern móral yfir þessu þar sem ég er að fara að halda brúðkaup og svona en þeir þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur, ég er búinn að bóka nóg af giggum í aðdraganda brúðkaupsins þannig það verður fullt af áfengi í boðinu,“ segir Arnór kíminn.

Dagurinn einkenndist af mjög miklu fjöri.Ari Páll

Við tók mikill gleðidagur en Arnór segir að vinahópur sinn leggi alla jafna mikinn metnað í viðburði sem þessa. Þeir fóru í fótbolta, á FIFA mót og í ratleik um Reykjavík sem dæmi og þar var hægt að safna stigum. Fimmtíu stig voru gefin til þeirra sem fengu sér húðflúr tengdu Arnóri og endaði það svo að fimm vinir Arnórs flúruðu sig til heiðurs honum. Sjálfur fékk Arnór sér sitt fyrsta húðflúr, sem var bananabrauð.

Bananabrauðsflúrið hans Arnórs!Aðsend

„Ég er semsagt í kvikmyndaklúbb með nokkrum af strákunum í hópnum þar sem við reynum að hittast vikulega, baka bananabrauð og horfa á mynd. Við vorum því tveir sem fengum okkur bananabrauðsflúr.“

Steggjunin rétt að byrja

Arnór fékk svo blessunarlega tækifæri til að halda ESB pöbbkvissið sem hann hafði undirbúið svo vel og þegar leið á kvöldið hélt hann að dagskráin væri að klárast.

„Þá voru margir annað hvort mjög þreyttir eða mjög fullir og ég ætlaði að þakka fyrir mig. Mér fannst strákarnir standa sig vel en það var samt eitthvað innra með mér sem hafði búist við einhverju örlítið meira, þekkjandi þessa stráka sem eru jú mjög frumlegir.“

Arnór alsæll með ESB pöbbkvissið sitt. Ari Páll

Enda var dagskránni hvergi nærri lokið og þeir fara með Arnór í útilegu við Hvaleyrarvatn þar sem búið var að tjalda.

„Þá fannst mér þetta fullkomnað. Nema hvað, við förum að sofa seint um nóttina og klukkan sjö um morgun er ég vakinn til að fara á næsta stað. Ég hélt að við ætluðum kannski saman í bakarí að borða og fara yfir sögur frá deginum en svo var ekki.“

„Gjörðu svo vel, þú ert að fara til Færeyja“

Strákarnir skelltu þá klúti yfir augu Arnórs, settu hljóðeinangrandi heyrnartól á hann og skelltu honum inn í bíl. Sjálfir voru þeir í misgóðu ástandi og var bílferðin þeim ekki auðvelt, en þeir tóku þetta þó á sig fyrir stegginn.

„Ég sá ekkert og heyrði ekkert þegar þeir rúlla mér inn á Keflavíkurflugvöll í hjólastól. Þar er meðal annars tekin mynd af mér og U16 handboltalandsliði kvenna án þess að ég viti það og svo er klúturinn tekinn af mér við leitarhliðið og ég átta mig þá á því hvar ég er.

Þá sögðu þeir: Gjörðu svo vel, þú ert að fara til Færeyja. Nánari upplýsingar um hvað þú átt að gera og hvernig þú kemst heim koma síðar.“

Arnór ásamt U16 landsliði kvenna í handbolta.Ari Páll

Arnór hafði með í för vegabréf, sokka, bol, rautt lítið handklæði úr World Class, klósettpappírsrúllu, PlayStation 4 fjarstýringu og fimm nærbuxur sem vinir hans höfðu verið svo hugulsamir að pakka.

„Þetta var magnað, ég bara fer til Færeyja og veit ekkert hvað ég er að fara að gera. Þegar ég lendi tekur svo strákur að nafni Beinir á móti mér með skilti þar sem hann hafði trélitað nafnið Arnór. Hann hafði fengið strangar leiðbeiningar frá strákunum að skutla mér bara beint til Þórshafnar en var svona líka indæll og trítaði mig þvílíkt, þvert á leiðbeiningar strákanna. 

Beinir hafði verið í veislu kvöldið áður og spurði mig hvort ég væri líka þunnur, sem ég svaraði neitandi þar sem ég drekk ekki, en hann bað mig samt sem áður að koma með sér í sjósund. Við skelltum okkur og fórum svo að borða og ég sem vissi ekkert hugsaði með mér: Er ég að fara að verja viku með Beini hér?“

Í spilaranum hér að neðan má sjá stutt myndband af Beini og Arnóri í sjósundi: 

Klippa: Arnór Björnsson fer í sjósund í Færeyjum

Þurfti að safna hundrað stigum til að komast heim

Þegar Arnór var kominn til Þórshafnar fær hann loksins skilaboð frá strákunum þar sem það kom í ljós að ég var í ratleik þar sem ég þurfti að safna hundrað stigum til að fá flugmiðann heim en flugið var klukkan 14:00 daginn eftir. 

„Í boði var mismunandi fjöldi stiga fyrir ýmislegt, allt frá því að knúsa kind yfir í að redda mér gistingu hjá heimamanni. Að sama skapi voru fjölmörg mínusstig í boði, til dæmis fyrir að borða, fara í sturtu, borga gistingu og að svara unnustu minni, en hún var ekki endilega mjög sátt við þá reglu. 

Ég tók á mig þrjú mínusstig fyrir að borða og fimm mínusstig fyrir að svara unnustu minni til að láta hana vita að ég mætti ekki svara henni á meðan ég væri í Færeyjum.“

Arnór ferskur í Færeyjum!Aðsend

Arnór er ekki feiminn að eðlisfari og það er ansi erfitt að koma honum úr jafnvægi.

„Auðvitað er samt til feimni í manni en þarna var það ekki í boði, ég þurfti að rekast á ókunnugan og segja: Hæhæ, getur þú hjálpað mér og má ég syngja lag, eða fá að gista heima hjá mér? Það var mjög gott að hafa engan tíma til að vera feiminn og þetta var svo ótrúlega skemmtilegt enda eru Færeyingar ekki þekktir fyrir að vera leiðinlegir, þau voru öll af vilja gerð.“

Arnór grunaði sannarlega ekki hvað var í aðsigi þarna. Ari Páll

Verndarar og vinir fyrir lífstíð

Hann bað um að komast inn í Facebook-hópinn Íslendingar í Færeyjum og er þakklátur fyrir það hve fljótt hann var samþykktur.

„Það bjargaði mér alveg og þar gat ég útskýrt stöðu mína. Í upphafi voru flestar athugasemdir bara í þeim dúr að fólki þætti þetta fyndið og skemmtilegt og það hlakkaði til að fylgjast með. 

En að lokum var það hann Ævarr Freyr Birgisson og unnusta hans Silja, sem eru á mínum aldri, sem tóku mig undir sinn verndarvæng og gerðu allt sem þau gátu til að gefa mér stig. Þau gáfu mér meðal annars skerpukjöt, sem er myglað og rosalega vont lambakjöt, og leyfðu mér að gista og ég get ekki þakkað þeim nægilega.“

Fyrir einskæra tilviljun var útskriftarveisla í gangi í húsinu við hliðina á Ævarri og Silju og þau hvöttu Arnór til að fara yfir og reyna að safna stigum.

„Ég mæti sem óboðinn gestur og þau skelltu sér með mér í fótbolta þrátt fyrir grenjandi rigningu. Ein stelpa var meira að segja klædd í rándýran þjóðbúning og hún var bara að rennitækla þarna í grasinu, svo lærði ég með þeim færeyskan þjóðdans og með hjálp allra, sérstaklega Ævarrs og Silju, tókst mér að safna 150 stigum sem gerði það að verkum að ég fékk meira að segja far með strákunum frá Keflavík.“

Hér má sjá Arnór dansa færeyskan þjóðdans með innfæddum:

Klippa: Arnór Björnsson dansar færeyskan þjóðdans með innfæddum

„Ekki til betri vinir í heiminum“

Einar Baldvin, einn höfuðpaurinn í skipulaginu, var í hópi þeirra sem sóttu hann og plataði Arnór aðeins við lendingu.

„Hann setti aftur klút yfir augun mín, fór með mig inn í rútu og sagði: Leiðbeiningar fylgja þegar þú ert kominn í Hafnarfjörð. Þá var ég orðinn ansi þreyttur og sagði: Ég bara hata ykkur og þið eruð ömurleg,“ segir Arnór skellihlæjandi en blessunarlega keyrðu þeir hann þó bara heim. Hann er óendanlega þakklátur fyrir þessa viðburðaríku steggjun.

„Þegar ég vaknaði í gærmorgun áttaði ég mig á því að steggjunin væri rúmir 56 klukkutímar og þá hugsaði ég: Það eru ekki til betri vinir í heiminum. 

Það er mjög erfitt að steggja menn sem drekka ekki, það getur verið smá leiðinlegt, og hvað þá menn sem eru ekki feimnir og þú átt erfitt með að gera óþægilega. Þeim tókst að gera þetta svo fullkomið og eftir standa fimm vinir með húðflúr tileinkuð mér og nýir færeyskir vinir,“ segir Arnór glaður í bragði að lokum.

#einn #endaði #færeyjum #steggjun #sögulegri


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262903760d/endadi-einn-i-faer-eyjum-i-sogu-legri-steggjun

📰 Aðrar fréttir

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
Félagið býður upp á fjölbreytt félagsstarf, þar sem flestir geta fundið vettvang við sitt hæfi og er markmið þess að fyrirbyggja félagslega einangrun ...
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
Bréf Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra til ríkissaksóknara sýnir að ófundinn AR-15 riffill var meðal þeirra atriða sem leiddu rannsók...
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
📅 16.08.2026 👁️ 0
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
Cinema is returning to El Muelle Shopping Centre in Las Palmas this autumn, with Odeon Multicines planning to open a new state-of-the-art complex in O...
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
📅 16.08.2026 👁️ 0
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
Spænsk F-18 orrustuþota skaut niður ómannaðan dróna í loftrými Rúmeníu, nærri borginni Galati við landamæri Moldóvu í nótt. Spænski flugherinn sinnir ...
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
📅 16.08.2026 👁️ 1
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
Margir Íslendingar bera örugglega nostalgískar tilfinningar í brjósti í garð hringvegarins um Ísland. Slíkar minningar eru oft tengdar ferðalögum úr æ...
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
📅 16.08.2026 👁️ 1
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
Þúsundir aðdáenda velsku söngkonunnar Bonnie Tyler komu saman í Mumbles í suður Wales í gær til að votta söngkonunni virðingu sína þegar kista hennar ...
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
📅 16.08.2026 👁️ 1
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois ...
77 fórust í ferjuslysi
📅 16.08.2026 👁️ 1
77 fórust í ferjuslysi
Yfirvöld í Simbabve segja að fjöldi látinna í ferjuslysi á Kariba-vatni fyrir vikunni sé kominn upp í 72. 77 var bjargað.Ferjunni hvolfdi á þriðjudag ...
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
The star plays the first of 10 dates in London, after which she will "step back" from public life.
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
📅 16.08.2026 👁️ 1
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
Yfirvöld í Marokkó handtóku 294 í gær sem ætluðu að fara frá Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Marokkóski fjölmiðillinn Le360 greinir frá....
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
📅 15.08.2026 👁️ 1
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
BC News asked current students about the worries they had before arriving at university how they overcame them.
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
📅 15.08.2026 👁️ 1
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
Men who have had the procedure can expect 10-20% more girth for the next six to nine months - but it can go wrong.
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
Samkvæmt nýjum fánalögum er kvöldið í kvöld síðasta kvöldið sem flagga má íslenska fánanum allan sólarhringinn. Frá og með 16. ágúst gildir því aftur ...
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
Skotárásin átti sér stað við nemendahúsnæði háskólans. Staðfest hefur verið að einn hinna særðu sé yngri en átján ára og að einn hinna særðu sé nemand...
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
📅 15.08.2026 👁️ 1
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
Tayane Dalazen was on a shark-diving trip in Brazil when she was attacked.
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
Officials say a rapid assessment into the impact of the earthquake that destroyed hundreds of buildings and killed 47 is under way.
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
Þórdís hefur nú stigið fyrsta formlega skrefið sem nýr sendiherra, segir í tilkynningu sendiráðsins, en hún hefur afhent afrit af trúnaðarbréfi sínu t...
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
The party plans to release a full 50-page plan on Monday outlining their proposed changes were they to come to power.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn and replace Pip
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn and replace Pip
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
📅 15.08.2026 👁️ 1
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
Amy Hunt claims the third gold medal of her bid for a historic quadruple and Dina Asher-Smith makes history as Great Britain win two relay golds at th...
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
📅 15.08.2026 👁️ 1
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
Tjónið er mikið og þúsundir hafa flúið heimili sín eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,7 reið yfir Indónesíu í gærkvöld.Skjálftinn átti upptök sín un...
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að kennarar verði að treysta því að innleiðingaráætlun ríkisstjórnarinnar varðandi breytin...
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
If the storm makes landfall, it will be Hawaii's first direct hit by a hurricane in 34 years.
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
Tillagan var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Guðný María Jóhannsdóttir formaður ráðsins segir breytinguna til þess að tryggja ...
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú e...
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
📅 15.08.2026 👁️ 1
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
Security had been stepped up amid suggestions on social media of a second mass crossing on Saturday.
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
Í rassíu lögreglunnar reyndust sex ökumenn yfir löglegum mörkum og eiga þeir allir von á kæru. Þá reyndust nokkrir ökumenn til viðbótar vera undir áhr...
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
📅 15.08.2026 👁️ 1
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
Landsréttur úrskurðaði karlmann í síðustu viku í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst vegna heimilisofbeldis sem hann er talinn hafa beitt sambýl...
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. ...
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
Breytingar á einkunnagjöf hefðu ekki átt að koma kennurum á óvart, segir Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra sem gefur lítið fyrir fullyrðingar gr...
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir að breytingar sem gerðar voru á fánalögunum á Alþingi fyrr á árinu hafi reynst vel. En betu...
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
Farah Al-Qasem, sem á Lava Sweets ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, segir mennina hafa komið inn í verslunina skömmu eftir að hún opnaði í morgun m...
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn b...
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
Ellefu voru drepnir, þar af þrjú börn, og þrír særðust í loftárás Ísraela á suður Líbanon. Líbanska fréttastofan NNA segir að árásin hafi verið gerð á...
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík Lava Sweets & Cafe palestínskt kaffihúsi í KeflavíkÓgnandi tilburð...
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
Major incidents are declared across the UK including in Stourbridge, Sandwell and Pershore.
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði.Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að híf...
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
„Að nota ágreining sem rök gegn aðferð til að leysa úr ágreiningi er mjög spes, vægast sagt,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar,...
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestfjalli við Skorradalsvatn á fjórða tímanum vegna manns sem hafði dottið og slasað sig.
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
📅 15.08.2026 👁️ 1
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur beðið landsmenn að taka sér andartak til íhugunar eftir að Jason Arday, prófessor við Cambridge-háskól...
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
📅 15.08.2026 👁️ 1
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels Samúel Guðmundsson, Piers Morgan og Shmuleys BoteachFramkoma Samúels stórjók áhuga á Íslandi ...
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Samkvæmt honum er svo mjótt á munum fylkinganna að hann er ekki tölfræðilega marktækur en 51,5% þeirra se...
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, kveðst styðja markmið nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins um að minnka óþarfa umbúðir, auka endu...
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
📅 15.08.2026 👁️ 1
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
Ný tegund skipulagðrar glæpastarfsemi hefur vaxið hratt samhliða aukinni útbreiðslu rafmynta. Í stað þess að reyna að brjótast í gegnum flókin öryggis...
Varaði við unglingum í Vesturbænum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Varaði við unglingum í Vesturbænum
Varaði við unglingum í Vesturbænum Pablo Santos hvetur til yfirvegunar:„Ást og kærleikur til allra“ Mynd: Unsplash/Dominic Kurniawan Nýleg myndbirting...
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
📅 15.08.2026 👁️ 1
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
An 18-year-old man has been arrested in south Tenerife after allegedly physically assaulting his mother during an incident at their family home in Gra...