Ísak grillar Miðjarðarhafssteinbít ásamt grilluðum kúrbít og tómötum með panoettu gremolata í forrétt. Síðan býður Ísak upp á grillað lamba prime, brokkolíni, kartöflur og lauk sem hann ber fram með wasabi- og rauðvínsgljáa.
Þvílík snilld að læra af Ísaki þegar grilla skal fisk án þess að það klikki. Hann gerir það listavel og tekur örskamma stund í verkið. Líka frábært að geta gert allt á grillinu, forréttinn, aðalréttinn og meðlætið. Lambakjötið bráðnaði í munni og þessi wasabi- og rauðvínsgljái býður upp á ævintýraferð fyrir bragðlaukana.
Þegar grillað skal er gott að kunna nokkur trix, þá getur þetta ekki klikkað. Ísak ljóstrar upp nokkrum góðum ráðum fyrir næsta grillpartí sem allir eiga að geta leikið eftir.
Þættirnir fara í loftið á þriðjudögum á Vísi og Sýn+. Allar uppskriftir í þáttunum miðast við fjóra og allt hráefni fæst í verslunum Krónunnar.
Miðjarðarhafssteinbítur ásamt grilluðum kúrbít og tómötum með Pancettu-gremolata
Grillaður Miðjarðarhafssteinbítur
- 2 pk. Miðjarðarhafsmarineraður steinbítur
- Olía
- Salt
Aðferð:
Dreifið smá olíu á steinbítinn eftir smekk og leggið hann á funheitt grill. Stráið örlítið af salti og á hvora hlið.
Grillið steinbítinn á hvorri hlið í 2-3 mínútur, það fer eftir þykkt hversu mikinn tíma þarf. Leyfið fiskunum að hvíla í 3 mínútur.
Grillaður kúrbítur og kirsuberjatómatar
- 6 kúrbítar, litlir
- 6 kirsuberjatómatar
- 1 pk. pak choy-blanda
- Salt eftir smekk
- Olía eftir smekk
Aðferð:
Skerið kúrbíta og kirsuberjatómata til helminga. Veltið hvoru tveggja upp úr salti og olíu. Grillið á hvorri hlið í 2 mínútur. Setjið á disk og skreytið með pak choy-blöndu.
Pancetta gremolata
- 30 g fersk steinselja
- 1 sítróna
- 1 pk. citterio smoked pancetta cubes
- 100 ml ólífuolía
- Sjávarsalt eftir smekk
Aðferð:
Saxið steinselju mjög fínt og setjið í skál ásamt ólífuolíu. Rífið börk af sítrónu, skvettið safanum úr og bætið við.
Steikið pancettubita á grillpönnu við miðlungshita og bætið því einnig við. Bætið við sjávarsalti eftir smekk og smakkið til ef það vantar meiri sítrónusafa og/eða meira salt.
Grillað lamba prime
- 4 lamba prime
- 40 g smjör
- 4 ferskar timian greinar
- 1 vakúmpoki
- Salt eftir smekk
Aðferð:
Þerrið lamba prime með eldhúspappír og setjið í vakúmpoka ásamt smjöri og fersku timían. Vakúmpakkið pokann. Setjið í sous vide-bað á 56°C hita í 2 klukkustundir.
Fjarlægið lambaprime-in úr pokanum og stráið salti yfir allar hliðar. Grillið á funheitu grilli þar til lambið er vel brúnað. Leyfið lambinu að hvíla í 5 mínútur og skerið síðan í sneiðar.
Wasabi og rauðvínsgljái
- 1 krukka rauðvínssósa frá Sælkerabúðinni
- 1 krukka wasabi-smjör (Nordic Wasabi)
Aðferð:
Setjið rauðvínssósu í pott og náið upp að suðu. Bætið við heilli krukku af wasabi-smjöri smátt og smátt saman við sósuna og pískið saman við allan tímann.
Grillað brokkolíni
- 8 brokkolínistönglar
- Olía eftir smekk
- Salt eftir smekk
Aðferð:
Veltið brokkolíninu upp úr olíu og salti. Grillið brokkolínið á funheitu grilli í 1 mínútu á hverri hlið.
Grillaðar kartöflur og laukur
- 4 laukar
- 10 gullauga kartöflur
- Hunang eftir smekk
- Smjör eftir smekk
- Olía eftir smekk
- Salt eftir smekk
Aðferð:
Setjið lauk í hýðinu á miðlungsheitt grill og leyfið honum að grillast þar í u.þ.b. 45 mínútur.
Sjóðið kartöflur í vatni ásamt salti. Leyfið kartöflum og lauk að hvíla þar til hægt er að skræla þau bæði án þess að þið brennið ykkur. Skerið kartöflur og lauk til helminga og veltið upp úr olíu og salti. Grillið á grillpönnu í u.þ.b. 2 mínútur á hvorri hlið. Setjið smjör á kartöflurnar og leyfið því að bráðna með.
Setjið smá hunang með lauknum og stráið síðan sjávarsalti yfir kartöflurnar og laukinn.