Shabir Ahmed, einn af leiðtogum Rochdale nauðgunargengisins í Bretlandi, verður látinn laus úr fangelsi á fimmtudag en verður ekki vísað úr landi til Pakistan þrátt fyrir að hafa verið sviptur breskum ríkisborgararétti.
Ástæðan er ákvæði í breskum lögum, Immigration Act 1971, sem veitir ríkisborgurum Samveldisríkja, sem komu til Bretlands fyrir árið 1973, undanþágu frá brottvísun. Ahmed hefur búið í Bretlandi nógu lengi til að falla undir það ákvæði.
Dæmdur fyrir nauðganir og kynferðisbrot gegn börnum
Ahmed, sem er 73 ára, var dæmdur árið 2012 ásamt fleiri mönnum úr Rochdale og Oldham fyrir umfangsmikil kynferðisbrot gegn stúlkum, sumar þeirra voru aðeins 13 ára gamlar.
Hann var sakfelldur fyrir tvær nauðganir, aðild að nauðgun, kynferðisbrot og stórfellt mansal.
Saksóknarar sögðu að Ahmed hefði komið fram við eitt fórnarlamb sitt eins og eign og beitt hana kynferðisofbeldi nánast vikulega yfir langt tímabil en sú hafi verið „uppáhaldið hans“.
Við dómsuppkvaðningu var Ahmed fjarlægður úr dómsal eftir að hafa ítrekað truflað þinghaldið og kallað ásakanirnar uppspuna.
Starfaði hjá sveitarfélagi þrátt fyrir ábendingar
Síðar kom í ljós að Ahmed hafði starfað sem ráðgjafi í velferðarmálum hjá sveitarfélaginu Oldham.
Óháð úttekt leiddi í ljós að lögregla hafði ekki upplýst sveitarfélagið um fyrri hegðun hans eða handtöku vegna gruns um kynferðisbrot gegn börnum. Svo þrátt fyrir að vera með slíkar ásakanir á bakinu fékk Ahmed að vinna náið með börnum í mjög viðkvæmri stöðu.
Þingmaður krefst lagabreytinga
Paul Waugh, þingmaður Verkamannaflokksins fyrir Rochdale, segir óásættanlegt að Ahmed verði ekki sendur úr landi.
„Það hefði átt að senda þennan siðspillta barnaníðing til Pakistan fyrir löngu. Ef breyta þarf lögunum til að það verði mögulegt eiga ráðherrar að gera það,“ sagði Waugh í samtali við The Telegraph.
Verður undir ströngu eftirliti
Breska innanríkisráðuneytið segir að Ahmed verði áfram á kynferðisbrotaskrá ævilangt eftir að honum verður sleppt úr fangelsi.
Honum verður bannað að hafa samband við fórnarlömb sín eða börn og ungmenni. Þá verður hann undir útgöngubanni, bundinn við ákveðin svæði og með ökklaband sem fylgist með ferðum hans. Verði hann uppvís að brotum gegn skilyrðunum verður hann handtekinn á ný.
Ný rannsókn á kynferðisbrotagengjum hafin
Á sama tíma hefur verið tilkynnt um nýja rannsókn á starfsemi nauðgunargengja í Englandi og Wales.
Fyrstu rannsóknarsvæðin verða meðal annars London, Oldham, Bradford og Keighley. Þar verður farið yfir hvernig yfirvöld brugðust við tilkynningum um kynferðislega misnotkun barna, hvernig fórnarlömb voru meðhöndluð og hvaða mistök voru gerð af hálfu lögreglu, sveitarfélaga, skóla og annarra opinberra stofnana.
Borgarstjórinn í London, Sadiq Khan, hefur lýst yfir stuðningi við rannsóknina og sagt mikilvægt að allt verði gert til að upplýsa málið. Khan hefur þó lengi verið gagnrýndur fyrir að neita því að slík gengi starfi í London þrátt fyrir að lögregla sé á öðru máli.