Halldór Haraldsson píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík lést í gær, 89 ára gamall. Halldór á farsælan feril að baki og fékk meðal viðurkenningu Associate of the Royal Academy of Music í London árið 1988 og var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu tónlistar árið 2003.
Halldór hélt sína fyrstu opinberu einleikstónleika árið 1965 og svo fjölda einleikstónleika bæði heima og erlendis, en einnig lék hann margoft sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hann stofnaði Tríó Reykjavíkur árið 1988 með Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara og héldu þau tónleika víða. Þá lék hann oft með Gísla Magnússyni píanóleikara en þeir gáfu út tvær hljómplötur með verkum fyrir tvö píanó.
Hann vann við tónlistarkennslu árum saman og var einn stofnenda Tónlistarbandalags Íslands.
Halldór kenndi tónlist í áraraðir, meðal annars við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1966 til 2008, þar sem hann varð síðar yfirkennari píanó- og píanókennaradeildar og loks skólastjóri frá 1992 til 2003. Samhliða þeim stöðum kenndi hann nemendum í hlutastarfi og kenndi svo píanóleik við Listaháskóla Íslands 2002 til 2012.
Halldór lætur eftir sig eiginkonu, Susan Haraldsson, tvö uppkomin börn, barnabörn og barnabarnabörn. Hann verður jarðsunginn í Hallgrímskirkju 9. júlí.