Landeigandi í Skagafirði hefur áhyggjur af öryggi ferðafólks og náttúruspjöllum á landareign sinni. Hann segist tilneyddur til að loka fyrir aðgang.
„Þetta byrjaði þannig að þetta var bara fyrir sveitunga og það vissu ótrúlega fáir af þessu. Þetta er svolítið falið, mjög nálægt veginum en sést eiginlega ekki neins staðar frá,“ segir Dagur Torfason, bóndi og landeigandi í Skagafirði.
Nágranni rukkar fyrir bílastæði og salerni
Hann segir fjölda ferðafólks streyma á landareign sína til að njóta náttúruperlanna Fosslaugar og Reykjafoss. Landið er í einkaeigu og ekki er seldur aðgangur inn á svæðið. Nágranni hans hefur hafið gjaldskyldu á bílastæði og salerni á sínu landi. Bílastæðin voru upphaflega gerð vegna landsmóts hestamanna áður en það var fært yfir á Hóla í Hjaltadal.
„En svo þegar farið er að rukka eykst umferðin ennþá meira og ágangurinn verður eiginlega bara stjórnlaus.“
Fólk telur sig vera að borga fyrir aðgang
Mikið sér á jarðveginum í kringum Fosslaug því engir stígar eru þar. Í rigningu verður leðjusvað þar allt í kring. Til að komast að lauginni þarf að fara yfir brú sem er komin til ára sinna. Dagur segir hana hættulega.
„Það er orðið svona óljóst hver ber skaðabætur af því ef einhver slasar sig þarna af því að fólk náttúrulega telur sig vera að borga fyrir aðgang. En það er alveg eins líklegt að ábyrgðin myndi lenda á okkur ef einhver myndi slasa sig.“
Lög um almannarétt of laus í reipunum
Dagur lokaði fyrir aðgang inn á landareign sína í gær því hann þorir ekki öðru. Hann segir lög um almannarétt of laus í reipunum en þar segir að fólk megi ganga um óræktuð lönd svo lengi sem gengið sé vel um.
„Það þyrfti bara í raun að setja miklu strangari lög um þetta, hvort að almannarétturinn eigi við um alla sem eru á Íslandi eða hvort það eigi bara við um Íslendinga.“