Leikkonan Olivia Wilde var lögð í einelti í æsku fyrir sitt raunverulega eftirnafn – Cockburn – og ákvað því að taka upp eftirnafnið Wilde þegar hún gerðist leikkona. Hún lýsir því í hlaðvarpinu Armchair Expert að fáir átti sig á því hvernig eftirnafnið Cockburn, sem kemur frá Skotlandi, er borið fram.„Það er borið fram Coburn (Kóbörn),“ sagði leikkonan við þáttastjórnandann Dax Shepard í þættinum sem fór í loftið á mánudaginn. Margir bera eftirnafnið fram eins og það er skrifað, þ.e. að það sé samsetning af ensku orðunum fyrir getnaðarlim og fyrir bruna, eða typpabruni.
Leikkonan opinberar hvernig bera á fram raunverulegt eftirnafn hennar sem mörgum þykir neyðarlegt