Nýfætt barn fannst látið á kamri á tónlistarhátíð í Michigan í Bandaríkjunum. Rannsókn á málinu er hafið og beðið er eftir niðurstöðum krufningar.Tímaritið People greinir frá þessu.Starfsmaður á tónlistarhátíðinni Electric Forest í bænum Rothbury í Michigan fann barnið látið á kamri á tjaldstæði á sunnudag, þann 28. júní. Electric Forest er fjögurra daga raftónlistarhátíð.Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að barnið var innan við mánaðar gamalt. Dánarorsök liggi ekki fyrir en krufning eigi eftir að fara fram.
Nýfætt barn fannst látið á kamri á teknóhátíð