Eftir að Ísland slökkti alveg á 2G- og 3G-kerfinu hefur eCall, kerfi sem hringir sjálfvirk neyðarsímtöl úr bílum, nánast þurkkast út. Í maí voru þau 175 en í júní aðeins fimm. Ísland er fyrsta Evrópuþjóðin sem hefur slökkt alveg á kerfunum.
Sjálfvirkar neyðarhringingar hafa verið að meðaltali 150 á mánuði undanfarið ár, segir Ármann Gestsson, varðstofustjóri hjá Neyðarlínunni. Hann segir mikið gagn af þessum símtölum og vonast til að hægt verði að bregðast við vandamálinu.
Þúsundir síma og tugir þúsunda bíla
Í upphafi árs voru um 30.000 símar sem virkuðu ekki eftir að slökkt hafði verið á sendunum. Fjarskiptastofa áætlar að í dag séu þeir 6.000. Þá má áætla að tugir, ef ekki hundrað, þúsund bílar séu nú með óvirkt eCall-kerfi og nái ekki sambandi við Neyðarlínuna við árekstur.
Ekki er hægt að uppfæra allar tegundir bíla og gæti kostnaður við sumar uppfærslur hlaupið á tugþúsundum króna, segir Ómar Sveinsson, þjónustufulltrúi bílaverkstæðis Hölds á Akureyri.
„Þetta kerfi er mjög mikilvægt og getur bjargað mannslífum. Hins vegar eru sumir framleiðendur sem bjóða ekki upp á uppfærslu og þeir kenna svo símkerfunum um.“
Lokunin hefur áhrif á fleiri
Lokunin hefur áhrif á fleira en bara bíla og síma. Þetta hefur einnig áhrif á öryggiskerfi, neyðarhringingar úr lyftum og sum lækningatæki. Undirbúningur fyrir lokunina stóð yfir í langan tíma og allmargir gátu brugðist við, til dæmis rekstraraðilar öryggiskerfa. Kostnaðurinn fyrir þá hleypur á milljónum. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur farið ómældur tími og vinna bæði hjá Öryggismiðstöðinni og Koné, sem þjónustar lyftur, í að skipta um búnað á undanförnum mánuðum og kostnaðurinn er gríðarlegur.
Benda hver á annan
Fjarskiptakerfið er í eigu og rekstri fjarskiptafélaganna. Fjarskiptastofa, sem heyrir undir innviðaráðuneytið, hefur eftirlit með þessum félögum. Nú er staðan þannig að hver bendir á annan og ekki er ljóst hvar ábyrgðin liggur.
„Ríkið getur haft allt um allt að segja ef áhugi er fyrir hendi. Þetta er búið að vera samtal við Fjarskiptastofu sem er stjórnvald. Þau eru vel upplýst og hafa verið í mörg ár. En ef ríkið hefði viljað grípa inn í hefðu verið öll tækifæri til þess.
[Það er] spurning hvort bílaframleiðendur sjálfir hefðu átt að sjá það fyrir. Þetta hefur legið fyrir í mörg ár að þetta þurfi að gerast í öllum heiminum,“ segir Logi Karlsson, framkvæmdastjóri tækniþróunar Símans.
Fjarskiptastofa gaf ekki kost á viðtali í dag en segir í skriflegu svari að vandamálin með eCall-neyðarhringikerfið hafi ekki verið óvænt. Ákvörðun um lokun 2G- og 3G-farsímakerfa sé fyrst og fremst rekstrarleg ákvörðun fjarskiptafélaganna og á þeirra ábyrgð.
Hlutverk Fjarskiptastofu sé að hafa eftirlit með því að breytingarnar fari fram með hagsmuni almennings og almannaöryggi að leiðarljósi.