Hundurinn Boss í Ockelbo í Svíþjóð hefur tekið félagsskap elgsins Stínu fagnandi en hún flutti nýlega á heimilið. Elgurinn fæddist veikburða og er því gefin mjólk á bænum. Með þeim hefur tekist óvænt vinátta.
„Það er magnað að sjá hvernig gamall veiðihundur, sem hefur veitt elgi alla ævi, getur breyst á efri árum, misst veiðieðlið og orðið hamingjusamur elgspabbi sem annast elg,“ segir Petter Arkesjö, framkvæmdastjóri elgagarðsins í Ockelbo.
„Við eigum tvö lítil börn sem hlaupa um og leika sér við Boss og Stínu. Þegar Stína og Boss urðu svona góðir vinir hefur hún félagsskap og nánd þótt við séum ekki á staðnum.“