Langreyður sem Hvalur 8 veiddi 22. júní síðastliðinn var skotin með fjórum sprengiskutlum, samkvæmt eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar. Þrjátíu og ein mínúta leið frá fyrsta skoti þangað til hún drapst.
„Öll tilvik þar sem hvalur er skotinn oftar en einu sinni eru skráð sem frávik og þá rannsökum við málið,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST.
Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir tekur undir að drápið sé frávik og segir að dauðastríðið hafi verið óvanalega langt í þessu tilfelli.
Hún bendir á að árið 2023 hafi aðeins ein langreyður háð dauðastríð lengur en í 12 mínútur. Á þeirri vertíð veiddust 24 dýr og meirihluti þeirra drapst samstundis. Fimm langreyðar voru skotnar tvisvar og engin þeirra oftar.
Krefjast stöðvunar veiða
Í yfirlýsingu frá ýmsum náttúru- og dýraverndarsamtökum er athygli vakin á atvikinu og sagt að það sé hvorki einangrað né tilfallandi. „Þegar svo alvarleg brot á dýravelferð eiga sér stað ber að stöðva veiðarnar tafarlaust og rannsaka málin af fullri alvöru.“
Undir yfirlýsinguna rita Hvalavinir, Hard to port, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Samtök grænkera á Íslandi, Samtök um dýravelferð á Íslandi og Ungir umhverfissinnar.
Árið 2023 stöðvaði MAST veiðar Hvals 8 tímabundið vegna brots á lögum um velferð dýra. Þá var langreyður skotin utan tilgreinds marksvæðis og drapst ekki strax. Hún var ekki skotin í annað sinn fyrr en tæpum hálftíma síðar og drapst nokkrum mínútum eftir það.
Forstjóri MAST segir ekki tímabært að áætla hvort drápið í síðustu viku sé sambærilegt því atviki.
Aldrei gott að hvalur sé skotinn oft
MAST tekur til skoðunar hvort atvikið brjóti gegn lögum um velferð dýra eða reglugerð um veiðar á langreyðum. Samkvæmt þeirri síðarnefndu skal alltaf stefnt að því að aflífa dýr samstundis og með sem minnstum sársauka.
Hversu alvarlegt atvik er það að hvalur sé skotinn fjórum sinnum og heyi yfir hálftíma dauðastríð?
„Það er náttúrlega aldrei gott,“ segir Hrönn. „Auðvitað viljum við sjá það að ef það eru stundaðar hvalveiðar að þær séu gerðar þannig að dýrið sé aflífað á eins mannúðlegan hátt og mögulegt er. Þess vegna erum við að rannsaka þetta.“
Bæði hvalveiðiskipin, Hvalur 8 og Hvalur 9, eru við bryggju í Hvalfirði vegna slæmra veðurskilyrða á miðum úti.