Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði var kallað út á mesta forgangi á sjöunda tímanum í kvöld eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust neyðarboð frá togaranum Ottó N. Þorlákssyni úr Vestmannaeyjum. Togarinn var þá staddur hættulega nálægt landi við Siglufjörð.
Lega ofhitnaði í togaranum með þeim afleiðingum að mikill reykur myndaðist. Skipið var algerlega aflvana og rak það í átt að landi.
Áhöfnin á Sigurvini brást skjótt við og hélt björgunarskipið úr höfn aðeins um fimmtán mínútum eftir að útkallið barst.
Skipin eru nú komin inn á Siglufjörð og vinnur áhöfn björgunarskipsins að því að koma togaranum örugglega að bryggju.